12.2.2012 21:58:00   -  Ábendingar um skrif annarra og viðtöl

smugan.is flytur þetta efni um lífeyrissjóðina. Þar er vitnað fyrst í formann BSRB:

Það er staðreynd að lífslíkur fólks eru mun betri í dag en þegar kerfið sem við búum nú við var sett á. Þannig er auðséð að endurskoða verður lífeyriskerfið og þá um leið við hvaða aldur á að miða þegar kemur að því að hætta vinnu og hefja töku lífeyris. Það verður að mæta þessu með einhverjum hætti og fyrst og síðast að tryggja að lífeyriskerfið standi undir sér til framtíðar,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB. 

Meira...

5.2.2012 23:37:00   -  Ábendingar um skrif annarra og viðtöl

Perlan hefu lengi verið vandræðabygging að því leyti að enginn hefur getað svarað því almennilega hvaða starfsemi ætti að vera í byggingunni. Nú er loksins komin fram almennileg hugmynd frá Þórunni Sigríði  Þorgrímsdóttur og Hjörleifi Stefánssyni.. Hugmynd þeirra gengur út á það að náttúruminjasafni verði komið þar fyrir. Auðvitað væri eðlilegt að Náttufræðistofnun og Náttúruminjasafn væri í einni og sömu stofnuninni. Og þannig gæti það enn orðið. En ef náttúruminjasafn á að vera sjálfstæð stofnun þá er það fín hugmynd að koma henni fyrir í Perlunni: 

Um þetta er fjallað í grein í Fb um helgina þar sem segir:

 

Meira...

2.2.2012 18:53:00   -  Ábendingar um skrif annarra og viðtöl

Þau tíðindi birtust í vikunni að leiðtogar vinstri flokka á Norðurlöndum sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu um efnahagsmál. Þetta hefur aldrei gerst áður.  Undir yfirlýsinguna rita:

Jonas Sjöstedt sem er nýkjörinn formaður Vinstri flokksins í Svíþjóð
Kristin Halvorsen, menntamálaráðherra í Noregi og er formaður Sósíalíska vinstri flokksins

Paavo Arhinmäki sem er formaður  Vänsterförbundet í Finnlandi
Steingrímur J. Sigfússon ráðherra og formaður VG

Högni Hoydal formaður færeyska Þjóðveldisflokksins

og Kuupik Kleist  formaður Inuit Ataqtigit og formaður grænlensku landssjórnarinnar.

Meira...

Hugmynd

Síðunni Hugmynd er ætlað að halda utan um skrif mín frá árinu 2010. Þangað verður einnig safnað eldri skrifum. Þá verður oft vísað til skrifa annarra. Ekki verður skrifað reglulega á síðu þessa heldur af og til eftir aðstæðum höfundar.-  Ég gaf út heimasíðuna Hugmynd á árunum 1998 – 1999 en og hér gengur hún til móts við nýja framtíð. 

Svavar Gestsson

Ábendingar



    ÆTTARTRÉÐ

    Ættartréð þitt
    teygir limar sínar
    áramilljarða aftur í tímann,
    til frumstæðustu lífefna.
    Í það vantar ekki
    eina einustu grein, 
    eða samfellda aðhlynningu
    jarðar og sólar.
    Þess vegna slær hjarta þitt, núna.
    Hver andardráttur þinn
    er þrunginn hamingju og þökk
    fyrir undursamlega tilviljanaröð.

     

     


    Páll Bergþórsson