Greinar og önnur skrif frá líðandi stundu - safn

Hver sagði þetta?

 

 

 

Hver sagði þetta:

 "Mér rennur kalt vatn milli handa og fóta þegar ég heyri þessa vitleysu." Svar sendist á svavar.is

 

Svarið er ekki Vigdís Hauksdóttir heldur Bibba á Brávallagötunni.

 

En hver sagði:

 

:  „Í stéttaþjóðfélagi er hver maður i einhverri  stétt og sérhver hugsun ber undantekningarlaust mark einhverrar stéttar."

     Þetta var að sjálfsögðu enginn annar en Karl Marx.

 

 

Greinar og önnur skrif frá líðandi stundu

20. desember 2011

Stjórnarandstaða eignast ráðherra

Eins og kunnugt er búa Íslendingar við þingræði. Þingræði byggist á meirihluta alþingis þannig að það er yfirleitt meirihlutinn sem ræður því hverjir skipa ríkisstjórnir. Það er ekki þar með sagt að ríkisstjórnir ráði öllu; sumu ráða ríkisstjórnir alveg, eins og fjárlögum. Í fyrra gerðist það að þingmenn úr öðrum stjórnarflokknum ákváðu að greiða atkvæði á móti fjárlögunum. Töldu ýmsir það til marks um að þessir þingmenn væru á leið úr flokki sínum. Sú varð líka raunin.

 

 

Icesave-meirihlutinn á alþingi réði lengst af vegferð þess máls. Það voru þingmenn stjórnarandstöðunnar og fáeinir þingmenn og einn ráðherra annars stjórnarflokksins sem mynduðu þann meirihluta. Stjórnin var minnihluta stjórn í því máli.

Nú hefur enn ein nýjungin teiknast upp á stjörnuhiminn skammdegisins: Stjórnarandstaðan styður einn ráðherrann og gerir um það sérstaka samþykkt. Þetta er athyglisvert og nýlunda. Þessi ráðherra hefur verið einn fremsti talsmaður þess að Ísland gangi í Evrópusambandið en stjórnarandstöðuflokkarnir eru að sögn á móti því að Ísland gangi í Evrópusambandið.

Hvernig ætli þessum ráðherra líði að sitja í skjóli stjórnarandstöðunnar?