Ábendingar um skrif annarra og viðtöl - safn

Hver sagði þetta?

 

 

 

Hver sagði þetta:

 "Mér rennur kalt vatn milli handa og fóta þegar ég heyri þessa vitleysu." Svar sendist á svavar.is

 

Svarið er ekki Vigdís Hauksdóttir heldur Bibba á Brávallagötunni.

 

En hver sagði:

 

:  „Í stéttaþjóðfélagi er hver maður i einhverri  stétt og sérhver hugsun ber undantekningarlaust mark einhverrar stéttar."

     Þetta var að sjálfsögðu enginn annar en Karl Marx.

 

 

Ábendingar um skrif annarra og viðtöl

8. maí 2012 08:59

Innmúruð og innvígð glámskyggni

Grein dagsins er eftir Torfa Tulinius. Hvenær ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að biðjast afstökunar á hugmyndafræði hrunsins. Það ber ekki á því; í staðinn tala sumir forystumenn hans eins og ekkert hafi gærst og Sjálfstæðisflokkurinn sé fæddur í gær. Torfi segir: 

Lesa meira
5. apríl 2012 10:40

Það er komið að útgerðinni

Í grein í FB segir Huginn Þorsteinsson:

,,Við þessar aðstæður er eðlilegt að gera kröfur til sjávarútvegsins um að hann skili meiru í sameiginlega sjóði landsmanna. Ríkissjóður hefur tekið á sig miklar byrðar eftir hrun við að halda innviðunum í samfélaginu gangandi. Að sama skapi hefur almenningur þurft að þola niðurskurð á opinberri þjónustu, hærri álögur og högg vegna falls krónunnar" 

 

Í heild er greinin svona:

 

Lesa meira
30. mars 2012 12:44

Af hverju Hverahlíðarvirkjun - handa hverjum?

Formaður Vinstri hreyfingarinnar grænd framboðs í Reykjavik Líf Magneudóttir skrifar athyglisverða grein um Hverahlíðar-virkjun í Fb í dag. Greinin er svona:

 Orkuveita Reykjavíkur sleppti heldur betur fram af sér beislinu í hinu svokallaða góðæri á Íslandi. Fyrir hrun var fjárfest fyrir milljarða króna. Það hefur svo komið á daginn að forsendur þessara fjárfestinga reyndust ekki halda. Skuldir Orkuveitunnar hafa hækkað allverulega vegna gengisbreytinga en tekjurnar hafa ekki aukist til samræmis, þrátt fyrir miklar hækkanir á gjaldskrám til almennra notenda.

Lesa meira
27. mars 2012 05:58

Er stjórnarandstaðan á móti siðareglum fyrir forsetaembættið?

Þessi merka frétt birtist á visir.is í dag og hún er tilefni spurningarinnar hér að ofan: 

Lesa meira
14. mars 2012 12:31

Skapa þarf frið um Bessastaði segir Gunnar Karlsson

Gunnar Karlsson sagnfræðingur skrifar þörf áminningarorð um Bessastaði og forsetaembættið og nefnir nafn Péturs Gunnarssonar rithöfundar sem hugsanlegs forseta.

Gunnar segir:

Vel má fallast á það með Stefáni Jóni Hafstein hér í blaðinu 10. mars sl. að ekki sé heppilegt að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands í sumar. Þótt honum sé margt vel gefið getur hann aldrei orðið annað en í mesta lagi forseti lítils meirihluta þjóðarinnar, síst af öllu eftir atburði síðustu missera. Það sem við þörfnumst hins vegar er samstöðuafl og sameiningartákn, maður sem getur endurvakið þann frið um Bessastaði sem ríkti áður en Ólafur Ragnar fór að búa þar. Það merkir ekki endilega að forseti þurfi að vera kosinn með miklum meirihluta atkvæða, þótt það væri til bóta ef þess væri kostur, heldur að hann verði strax vel viðunandi og fljótlega vinsæll meðal þeirra sem kjósa hann ekki. Vigdís Finnbogadóttir hlaut aðeins þriðjung atkvæða þegar hún var kosin fyrst, en hún ávann sér fljótt álit og virðingu sem gerði hana að sannkölluðum þjóðhöfðingja. Hún reyndist vera rétt val.

Lesa meira
12. mars 2012 11:08

Umhugsunarvert: Eigum við að tengjast norsku krónunni?

Norskur prófessor vill að Ísland taki upp norsku krónuna að því er sagt er Fb í dag:

 
Öystein Noreng prófessor við Viðskiptaháskólann í Stavangri telur að Íslendingar eigi að taka upp norsku krónuna sem gjaldmiðil í stað evrunnar eða annarra mynta sem til umræðu hafa verið.

 

Lesa meira
3. mars 2012 02:07

Á sautján stöðum í eitt hundrað húsum

 

 

Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans skrifar þarfa hugvekju í FB:

Landspítali starfar nú á 17 stöðum í um 100 húsum og sex heilbrigðisdeildir háskólans starfa á 13 stöðum, allt frá Hofsvallagötu að Eirbergi á Landspítalalóð. Um er að ræða stærstu vinnustaði landsins. Á Landspítala vinna um 5.000 manns og við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands um 2.500 manns, þar með taldir stúdentar.

Lesa meira
23. febrúar 2012 10:44

Það verður alltaf einhver að borga

Þórarinn Pétursson hagfræðingur í Seðlabanka hefur vakið athygli fyrir skarpar þjóðfélagsgreiningar. Nú skrifar hann grein sem sýnir fram á það sem reyndar hlýtur að liggja í augum uppi að ef efnt verður til almennrar niðurfellingar skulda þá verður einhver að borga. Grein Þórarins birtist í FB í dag og hún er svona:

Lesa meira