Greinar og önnur skrif frá líðandi stundu
Við erum í alfaraleið á götuhorni heimsins
	<description>Það hefur tíðkast um fimm ára skeið að sumardagurinn fyrsti er dagur Jóns Sigurðssonar í menningarhúsi Íslands í Kaupmannahöfn Jónshúsi þar sem þau Ingibjörg Einarsdóttir og Jón Sigurðsson bjuggu mestallan sinn búskap. Að þessu sinni hlaut dr. Pétur Jónasson verðlaun Jóns Sigurðssonar. Afhenti forseti alþingis verðlaunin svo sem venja er. Í fyrra fékk Vigdís Finnbogadóttir þessi verðlaun. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir forseti alþingis ávarpaði verðlaunahafann sérstaklega um leið og hún afhenti verðlaunin. Svavar Gestsson fyrrv. sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn flutti ræðu dagsins að þessu sinni. Ræðan er birt á framhaldssíðu og fyrirsögnin hér að ofan er úr ræðunni:</description>
Þangað leitar klárinn
	<description>Hannes Péturson skrifar umhugsunarverða meðfylgjandi grein í FB 18. febrúar:</description>
Stjórnarandstaða eignast ráðherra
	<description>Eins og kunnugt er búa Íslendingar við þingræði. Þingræði byggist á meirihluta alþingis þannig að það er yfirleitt meirihlutinn sem ræður því hverjir skipa ríkisstjórnir. Það er ekki þar með sagt að ríkisstjórnir ráði öllu; sumu ráða ríkisstjórnir alveg, eins og fjárlögum. Í fyrra gerðist það að þingmenn úr öðrum stjórnarflokknum ákváðu að greiða atkvæði á móti fjárlögunum. Töldu ýmsir það til marks um að þessir þingmenn væru á leið úr flokki sínum. Sú varð líka raunin.</description>
Vaclav Havel og Endurbyggingin
	<description>Vaclav Havel er látinn. Hann kom hingað til lands í opinbera heimsókn í febrúar 1990. Hann var hér sem forseti Tékkóslóvakíu en líka sem leikskáld. Leikrit mánaðarins  í  Ríkisútvarpinu var eftir hann. Það sem hét Viðtalið í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Þessa dagana hafði verið ákveðið að loka Þjóðleikhúsinu í eitt ár vegna viðamikilla breytinga á húsinu. Þá var meðal annars ákveðið að svalir hússins yrðu ekki tvær heldur yrðu einar svalir í húsinu. Það vakti nokkra athygli en minni deilur en búast mátti við. En Havel var að koma. Síðasta frumsýningin í Þjóðleikhúsinu fyrir lokun varð Endurbyggingin eftir Havel sjálfan undir leikstjórn Brynju Benediktsdóttur. Það var í fyrsta sinn sem Havel sá  þetta leikverk sitt á sviði. Það fjallar um átök og yfirgang valdhafa.</description>
Mynd sem segir satt
	<description>Kvikmyndafélagið Umbi bauð á fimmtudagskvöldið til til frumsýningar á mynd um Halldór Laxness. í Paradísarbíói. Í stuttu máli: Þetta var stórkostlegt kvöld. Sá sem gerði myndina er Halldór Þorgeirsson. .Þetta er mynd sem allir þeir sem vilja sjá hlutina í réttu samhengi verða að sjá. Hún segir nefnilega satt: 
Um myndina  segir í kynningu:
"Halldór Laxness er kominn heim eftir að tilkynnt hefur verið að hann muni hljóta Nóbelsverðlaunin árið 1955. Á hafnarbakkanum hefur Alþýðusamband Íslands og BÍL skipulagt móttöku og hafa þúsundir manns flykkst niður á höfn að hylla hann. 
Hvernig stendur á því að þessi 53 ára gamli höfundur sem skrifar á íslensku og tilheyrir örsmárri þjóð hefur fengið þessi verðlaun?</description>
Því miður var það blekking
	<description>Einar Már Guðmundsson er elskaður dáður og virtur á Norðurlöndum, ekki síst í Danmörku en einnig Svíþjóð. Það þekki ég gjörla frá mínum sendiherratíma í báðum löndunum.
    Í dagblaðinu Information sl. fimmtudag birtist viðtal við hann þar sem segir meðal annars í lauslegri þýðingu:
     Einar Már Guðmundsson fór að velta fyrir sér gangi mála eftir að íslenski bankinn Icesave fór á hausinn, og allur heimurinn með Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, AGS, í forystu hótaði Íslendingum báli og brandi svo þeir segðu já við því að borga kröfur hollenskra breskra og hollenskra kröfuhafa. 
    „Það gerðum við bara ekki, og hókus pókus! þá kom í ljós að gjaldþrotabú Icesave fann peninga á kistubotninum til að borga.”</description>
Norrænt ævintýri handa öllum heiminum
	<description>islex - íslensk-norræna orðabókin á netinu 
Um islex – orðabókina sem breyttist í ævintýri á netinu – fimmtíu þúsund orð urðu tvö hundruð og fimmtíu þúsund orð
Í síðustu viku á degi Jónasar Hallgrímssonar var opnaður aðgangur að orðabók á netinu. Atburðurinn var í norræna húsinu og þar með sást árangur af margra ára starfi og áratuga undirbúningi. Það var svo haldið upp á opnun orða bókarinnar í Gautaborg 23. nóvember. Þar hélt ég eftirfarandi tölu um þessi tíðindi: Hugmyndir um orðabók fyrir þrjátíu árum breyttust í orðabók á netinu með íslensku sem grunnmál þar sem hægt er að fletta upp á dönsku, norsku og sænsku. Og svo kemur færeyska á næsta ári. Áhugasamir mega gjarnarn fletta upp á slóðinni www.islex.hi.is– og sjá: Ævintýraheimurinn opnast.
    Í ræðu minni fjallaði ég um orðabókina og menningarsamskipti Íslands og Svíþjóðar en svo vill til að ég kom að þessu verki úr þremur áttum á árunum frá 1990: Fyrst sem ráðherra, síðan sem formaður Norræna menningarsjóðsins og loks sem sendiherra Íslands í Svíþjóð.</description>
Sá hlær best sem síðast hlær
	<description>Styrmir Gunnarsson segir í blaðagrein um helgina:
“Þetta er sá flokkur, sem frá stofnun sinni hefur barizt fyrir lýðræði og verið í fremstu víglínu í baráttunni hér innan- lands við þau þjóðfélagsöfl, sem gengið höfðu erlendu valdi á hönd og vildu afnema lýðræðið. Um það snerist barátta sósíalista á 20. öldinni og í þeirri baráttu stóð Sjálfstæðisflokkurinn eins og óhagganlegur klettur allan tímann þegar önnur þjóðfélagsöfl sveigðu af leið með ýmsum hætti.”
Þetta er lygi. Íslenskir sósíalistar virtu alltaf lýðræðið og börðust fyrir því. Þeir vildu ekki “afnema” lýðræðið. Þeir stóðu fremstir í flokki við stofnun LÝÐveldisins.</description>
Fjórir karlmenn leggja þetta til íslenskrar þjóðmálaumræðu í nóvember 2011
	<description>Fjórir karlmenn leggja þetta til íslenskrar þjóðmálaumræðu í síðustu viku:
Þórður Ámundason sagði: 
Er litla frekjuskruddan að kyrkja sig? Af hverju klárar hún ekki málið venjulegu fólki til heiðurs?
Jóhannes Þ Jóhannesson sagði: 
Hver skyldi hafa mælt fyrir þessari línu: “Ráðherra getur í reglugerð, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar, takmarkað eða bannað akstur á jöklum og frosinni og snævi þakinni jörð þar sem hætta er á náttúruspjöllum eða óþægindum fyrir aðra sem þar eru á ferð.”
Svar Hugmyndar: Þetta er úr gildandi lögum um náttúruvernd. Þau voru sett árið 1999. Eina breytingin í frumvarpinu er sú að bætt er inn í orðunum “og frosinni.”
Pétur B. Snæland sagði:
“Ég hef verið bænheyrður, alla vega tvisvar að mig minnir. Því segi ég: Almáttugur góður guð losaðu okkur  við þessar óværur á alþingi sem allra allra fyrst!!!!!!....Amen.”
Hjörtur Sævar Steinsson:
“Við þurfum að fara með Skarnahlöss og losa í innkeyrsluna hjá þessu fólki.”
Þórður Ámundason aftur:
“Hafa skal svo illa úldin hlössin að engin fáist til að vera inni í húsunum lengur en smástund, og munum við sjá til síðustu ferða þessa(sic!) vitleysinga á tunglinu:)”</description>
SKYLDA ÍSLANDS VIÐ ÍSRAEL OG PALESTÍNU
	<description>- ER TIL PALESTÍNUMEIRIHLUTI Í FLEIRI MÁLUM Á ALÞINGI?
Össur Skarphéðinsson var ekki alltaf í flokki eftirlætisstjórnmálamanna undirritaðs. Til dæmis ekki meðan við vorum báðir í Alþýðubandalaginu. Þó var hann góður framan af sem ritstjóri Þjóðviljans. En sem utanríkisráðherra hefur Össur staðið sig vel og nú glæsilega. Hér er átt við afskipti hans af Palestínumálinu að undanförnu og þá stefnumótun sem þar liggur fyrir.</description>
Ný utanríkisstefna í verki
	<description>Afstaða íslenskra stjórnvalda til sjálfstæðis Palestínu er sennilega skýrasta dæmið um breytta stjórnarstefnu í utanríkismálum. Ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokkinn innanborðs hefði aldrei tekið svona skýra afstöðu með Palestínu. Frá þessu er meðal annars sagt á visir.is í dag, svona:</description>
Minning: Ástrún Valdimarsdóttir
	<description>Móðursystir mín Ástrún Valdimarsdóttir er til grafar borin í dag. Hún lést 11. september á nítugasta og öðru aldursári. Hér fara á eftir skrif um hana sem birtust í Morgunblaðinu í dag, þriðjudag. Fyrst er inngangur blaðsins um Ástrúnu og svo minningargrein mín um hana.</description>
Bættu við sig en töpuðu samt
	<description>Jafnaðarmenn fengu lökustu útkomu nokkru sinni í kosningunum í Danmörku en eru samt öruggir um að fá forsætisráðherrann. Bandamenn þeirra í SF töpuðu líka. En það eru víðar mótsagnir. Venstre bætti við sig eftir tíu ára stjórnarforystu og er áfram stærsti flokkur Danmerkur. Samt tapa þeir stjórnarforystunni til jafnaðarmanna og það stafar aðallega af því að Íhaldsflokkurinn tapar verulega og hefur aldrei verið minni.</description>
Mótsagnir í kosningaúrslitum: Ný ríkisstjórn samt
	<description>Kosningaúrslitin í Danmörku voru söguleg:
Sósíaldemókratar, Jafnaðarmannaflokkurinn, S,  fékk lakari útkomu en nokkru sinni síðustu sextíu árin. Samt fær flokkurinn og formaður hans umboð til þess að gera tilraun til stjórnarmyndunar.
Sósíalíski þjóðarflokkurinn, SF,  tapaði sjö þingsætum en vinnur engu að síður stórsigur. Flokkurinn verður að öllum líkindum aðili að næstu ríkisstjórn; í fyrsta sinn sem sá flokkur kemst nálægt því að komast í ríkisstjórn. Fastlega er gert ráð fyrir að flokkurinn fái embætti utanríkisráðherra sem er magnað, en þessi flokkur hefur í 50 ár verið lengst til vinstri í dönskum stjórnmálum og harður andstæðingur utanríkisstefnu kalda stríðsins.</description>
Afhroð Framfaraflokksins í Noregi
	<description>Nú liggja úrslit norsku kosninganna fyrir. Þetta voru kosningar til sveitastjórna og fyrstu kosningarnar eftir að ódæðin voru unnin í Osló og á Útey. Niðurstaða kosninganna var sú að stóru flokkarnir bættu við sig en minni flokkar töpuðu.  Rauðir fengu um 44 % yfir landið en bláir um 56 % yfir landið. Sveitarstjórnarkosningar gefa reyndar aldrei sömu mynd og þingkosningar en þær eru samt vísbendingar um heildarhreyfingar. Sá flokkur sem tapaði mestu var Framfaraflokkurinn sem tapaði um 7 prósentum atkvæða. Flokkurinn er í sárum úrslitin. Það er fagnaðarefni að flokkurinn skuli fá áminningu. Breivikflokkurin tapaði gífurlega sagði BBC. Útkoma Sósíalíska vinstri flokksins var slæm en hann tapaði samt innan við tveimur prósentum frá síðustu kosningum. Athyglin hefur þó verið einna mest á útkomu SV af því að formaðurinn Kristin Halvorsen lét sig hafa það að segja af sér á kosninganóttina. Það var fljótfærnislegt af henni því það skyggði á afhroð Framfaraflokksins. Hvað gerir þá formaður Framfaraflokksins Siv Jensen? Hættir hún? Ekki endilega. Hún gæti látið nægja að losa sig við hinn gamla leiðtoga Karl I. Hagen sem varð flokknum fjötur um fót og skaðaði hann í Osló.
Ódæðin höfðu áhrif á kosningarnar, en það er engan veginn víst að áhrifin verði langvinn. Langlíklegast er að SV bæti við sig í næstu kosningum, en Verkamannaflokkurinn tapi. Engu að síður verði grundvöllur til að mynda vinstri stjórn.</description>
Landsbankaleiðin var skynsamleg
	<description>Þessi grein birtist í FB í dag. 
Nú þegar fyrir liggur að Landsbankinn á væntanlega fyrir kröfunum vegna Icesavemálsins er mikilvægt að hafa það í huga hvernig það kom til að eignir Landsbankans eru teknar upp í Icesave.</description>
Hægri flokkar sækja á í Noregi
	<description>Arbeiderpartiet
32,6 %
29 %
- 3,6
Fremskrittspartiet
14,6 %
15,8 %
+ 1,2
Høyre
25,4 %
25,9 %
+ 0,5
KrF
5,9 %
6,4 %
+ 0,4
Rødt
1,5 %
1,1 %
- 0,4
Senterpartiet
5,6 %
6,1 %
+ 0,5
SV
5,1 %
4,7 %
- 0,4
Venstre
6,2 %
6,3 %
+ 0,1
Andre
2,9 %
4,6 %
+ 1,6     Það hefur verið fróðlegf að fylgjast með skoðanakönnunum vegna norsku sveitarstjórnarkosninganna. Þar virðast stjórnarflokkarnir og Rauða bandalagið tapa síðustu dagana en hægri flokkarnir vinna á að sama skapi. Hér að ofan er tafla úr Aftenposten. fremst eru nöfn flokkanna á norsku, næsti dálkur er næstsíðasta könnun, svo nýjasta könnun og loks mismunurinn.  Sósíalíski vinstri flokkurinn hefur verið á stöðugri niðurleið nú um nokkurra vikna skeið.</description>
Það þarf að breyta til; það gætu konur gert
	<description>Þórunn Sveinbjarnardóttir tilkynnti í dag að hún léti af þingmennsku á morgun. Þessi tilkynning kemur öllum á óvart sem töldu sig þekkja til. Þórunn hefur bæði sem ráðherra og sem þingflokksformaður sýnt að hún veldur hvaða trúnaðarstarfi sem er. Það verður að teljast áfall fyrir Samfylkinguna og stjórnmálin og sérstaklega konur í stjórnmálum að hún hættir. Hún gefur ekki upp neina ástæðu, en það er vafalaust einhver ástæða sem á eftir að koma fram.</description>
Reykhólar eru ekki á Barðaströnd
Heiti flokkanna segja ekki alla söguna
	<description>Nöfnin á dönskum flokkum segja stundum ekki nema hálfa sögu og ekki það:
 Danski jafnaðarmannaflokkurinn heitir að vísu Sósíaldemókratar og það skilja allir. Sambærilegur flokkur á Íslandi heitir Samfylking en í Noregi Verkamannaflokkurinn. Þessir flokkar eru allir í sömu fylkingu í Norðurlandaráði. Bandamenn þeirra eru Sósíalíski þjóðarflokkurinn, það er Socialistisk Folkeparti sem er flokkur sem klofnaði út úr Danska kommúnistaflokknum 1956 þegar formaður flokksins yfirgaf eigin flokk og stofnaði nýjan flokk. Aksel Larsen hét hann. Socialistisk folkeparti, SF, hefur yfirleitt verið undir tíu prósent fylgi, en nú undir forystu Villy Sövndahls er flokkurinn með nærri 15 fylgi. Flokkurinn hefur teygt sig langt til að afla fylgis. SF er systurflokkur VG í norrænu flokkasamstarfi. En það er Einingarflokkurinn líka; mikið minni, en hefur áhrif. Hann er samansafn margra vinstri hópa og hefur stranga endurnýjunarreglu í heiðri; þingmenn mega aðeins sitja í sex ár.</description>